Leita í þessu bloggi

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Mig langar í svona: http://www.dancestore.com/1pjs.html
Þetta eru náttföt, sérstök. Ég er sko ótrúlega til.

þriðjudagur, febrúar 26, 2008

Það er rólegt þótt allt sé á fullu að venju. Teikna, jógast, og eins og Laddi: Dansa, veifa, húkka bíl og hnerra, ganga, synda, greiða sér, klóra sér á bakinu og hnykla vöðva. Enda er ég Súperman, eða sko það sem hljómar betur: Super mucher (kona á spænsku). Ég fékk evru afslátt einu sinni af instant supermantattúi sem ég fékk mér á ströndinni á Spáni, því ég sagði: Yo soy super mucher! Konan sem var að gera tattúin var ýkt ánægð með mig og sló evru af verðinu.

mánudagur, febrúar 18, 2008

Hér eru ég og ésú í kirkju. Ég er sú sem held á gítarnum.

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Þegar ég vaknaði í morgun gerði ég mér grein fyrir því hvað lífið getur verið fallegt. Eftir óveður kemur logn (eða næstum...) og eftir svört ský kemur bara sólskin. Út um gluggann sé ég leikvöll og sólskin og það er von á góðum gestum og saman förum við í hlý föt og könnum nokkra leikvelli. Verðum að sjá hvernig ástandið er á sleðabrekkunni, og bara keyra aðeins um líka og sjá hvernig veðrið hefur farið með bæinn okkar. Það er ótrúlega merkilegt hvað síðustu dagar hafa snúist um frumstæða hluti. Að komast í vinnu og úr henni, að ná í búð og versla vistir áður en veðrið lokar öllum götum. Að ná að keyra Óliver í skólann eftir krókaleiðum og taka hálftíma í það, því sumar götur lokuðust með snjó og snjómokstursdeildin hreinlega hafði ekki undan að opna þær áður en allt fór á sama veg. Mikið er merkilegt að búa hérna. Næstum ævintýralegt návígi við náttúruna og veðurfar. Þótt það skapi vandræði er líka afskaplega gaman að upplifa þetta svona sterkt. Ég meina, það er ekki sjálfgefið að komast í vinnu eða í búð. Þá er allt í einu spennandi að lifa.

miðvikudagur, febrúar 06, 2008

...og nú er ég veik, en laus við táfýluna.

mánudagur, febrúar 04, 2008

Það er veikur strákur og veikur maður hérna á heimilinu. Ég er ekki veik, en það er táfýla af mér. Farin í bað. Spilaði á Akureyri á laugardagskvöld. Kynntist skemmtilegu fólki. Gunni í Populus Tremula er æði, og líka Siggi sem er flottasti bóhem á landinu. Svo eru parið Maja og Halli frábær. Kristín þjóðfræðingur heillaði alla og sýningin hans Steins var að vekja mikla eftirtekt. Já, það er allt að gerast á Akureyri.