Leita í þessu bloggi

sunnudagur, október 29, 2006

Eitthvað gott um þessar mundir:
Góð plata: Royale Fanclub
Góð bók: Gerhard Richter, The Daily Practice of Painting
Góð bíómynd: Barnyard
Góð fjárfesting: myndavélin mín
Góður matur: matur sem einhver annar eldar
Góð hugmynd: að horfa minna á sjónvarp og fara meira í sund
Gott gos: Sodastream með Ribena útí
Góð skemmtun: að bjóða vinum Ólivers í mat
Góð ákvörðun: að horfa ekki á auglýsingar og hætta að fá ruslpóst
Gott markmið: að reyna að eyða eins litlum peningum og hægt er, til að taka ekki þátt í efnishyggjuþjóðfélaginu.
++++++++++++++++++++++++++++++
+ Góður dagur: dagurinn í dag+
++++++++++++++++++++++++++++++

föstudagur, október 27, 2006

Akkúrat núna elska ég:
Mjúku kinnina hans Ólivers,
Svefnhljóðin í feðgunum,
góðu samviskuna mína, sem er vegna þess að ég var dugleg að vinna,
myrkrið úti sem býr til rökkur inni,
myspace ,,vini" frá öllum heiminum, með tónlist sem ég myndi aldrei heyra annars,
að keyra og hlusta á góða tónlist,
að ég er róleg inní mér,
hvað mér finnst gaman að synda,
mötuneytið mitt,
hvað ég á góða að,
hvað ég þekki gott fólk,
tæknimenn, og allt tal um tækni og græjur,
myndavélina mína,
faðmlög,
knús,
rúmið mitt og sængina og koddann.
Góða nótt!

þriðjudagur, október 24, 2006

miðvikudagur, október 18, 2006

laugardagur, október 14, 2006

Komin heim, það var gaman. Allt gekk vel. Spiluðum 5 sinnum. Keypti lítið nema ótrúlega góðan mat. Kurrywurst mit pommes und mayo, Tom-Yam Gai, Kebap, .....