Leita í þessu bloggi

mánudagur, janúar 26, 2009



nætursúrrealisti, sem fer inná afar skrýtnar götur netsins. Það er ég núna.

sunnudagur, janúar 18, 2009

föstudagur, janúar 16, 2009

föstudagur, janúar 09, 2009

hahahhahahahahhahahelgarfrí!!!!!!!!!!! og sofa út.

fimmtudagur, janúar 08, 2009

Lagði mig eftir skóla í gær. Svo þreytt þessa dagana.Þessi dúr gerði það að sjálfsögðu að verkum að ég gat ekki sofnað fyrr en seint og síðar meir...og því vakna ég í panikki og keyri í bæinn til að ná á réttum tíma í skólann. Helv.....djö...andsk... eða eins og finnarnir segja: Satana hana!

miðvikudagur, janúar 07, 2009

Það er glæpur (gegn ríkinu?...hehehe) að vakna klukkan sex á morgnanna þegar ljósmagn er svona lítið. Enda er ég farin að sofa um níu-leytið á kvöldin bara til að fá mína 9 tíma sem er æskilegt því annars er ég svo mygluð á morgnanna að ég tel mér trú um að ég verði að sofa lengur. Svo vakna ég í panikki klukkan átta...og neyðist til að keyra í bæinn. En nei, í gær sofnaði ég 9, vaknaði áðan klukkan 6. Gramsaði í spólusafninu mínu og fann nokkrar, er með þær með mér ásamt vasadiskói og 5 evru heddfónunum úr Saturn í Berlín. Valdi Stranglers, SH-draum, Bob Dylan, eitthverja Búlgarska blásara-geðveiki, Siouxie og Joy Division. Svona þverskurður af því sem ég hef hlustað á á kasettum í gegn um tíðina. Nú þarf ég að plata líkamann til að langa í eitthvað að snæða á miðri nóttu, og svo er ég bara good to go að rölta af stað í rútu með vasadiskóið mitt. Já, stundum þarf ansi lítið til að gleðja mig.