Leita í þessu bloggi

mánudagur, febrúar 09, 2026

Tími bloggsins aftur hér

Ég átta mig á því að ég hef verið að nota fb eins og blogg í mjög langan tíma. Ég hef mun meira gaman af því að lesa og skrifa texta en nokkru sinni að detta inní skoðun á megrandi smáforritum eða æsifréttum um pólitík. Ég er ekkert að spá í mjög mikið af því sem birtist mér á fb en ég les það samt, eins og af skyldurækni. Hvað gæti ég verið að gera við þann tíma? Lesa bækur, teikna myndir, skrifa, lesa heimspeki, skrifa heimspeki, spila á gítar, spila á píanóið mitt, spila á bassa, semja tónlist, taka myndir, stunda útsaum, raða loksins geisladiskunum mínum í stafrófsröð, laga til í kassettusafninu mínu, taka til í geymslu og skipuleggja betur hillur, fara í göngutúra með nesti, sauma í, búa til föt, hlusta á vínylplötur, skoða báta niðri á höfn, vatnslita úti, já og svona 100 aðra hluti sem mér dettur í hug í fljóti bragði. Semsagt eiga líf. Ég elska fb stundum og það er mjög gott að nota það til að leita að viðburðum og auglýsa viðburði, sem og að auglýsa útvarpsþáttinn sinn. Að öðru leiti er ég að fá leið, mjög hratt. Það er ekki út af fólkinu sem þar er, það er út af SKORTINUM á fólkinu sem þar er. Mér finnst eins og fólk sé þar eitthvað að væflast um og leiðist smá. Eins og kannski síðustu gestirnir í mjög fjölmennu partýji. Ekki alveg tilbúin að fara en samt búin að skemmta sér nógu lengi. Hvað finnst ykkur? Eru allir að fara að blogga? Kallar heimurinn á textatjáningu þessa stundina? Eruð þið með bloggsíður?