Leita í þessu bloggi
fimmtudagur, október 17, 2013
Langspil á Rás 2, sunnudagskvöld, síður og podkast/hlaðvarp
http://www.ruv.is/langspil
Þetta er krækja á heimasíðu þáttarins sem ég var að byrja með á Rás 2. Hann heitir Langspil og verður alla sunnudag klukkan 19.30 til 21.00. Það verður hægt að hlusta á þættina um aldur og ævi, og um ókomna tíð á netinu ef maður fer til dæmis á þessa síðu sem er podcast-síða Langspils. Þarna borgar sig að nota einhvern annan vafrara en google-chrome, því annar kemur bara eitthvað bull. Mig langar mest af öllu til að sem flestir hlusti á þessa þætti sem ég er að gera um nýja og gamla íslenska tónlist og því er ég að auglýsa hér og um allt. Það er til dæmis líka til facebook-síða fyrir þá sem nota svoleiðis. Ef ég mætti ráða, væri heimurinn mun áhugasamari um útvarp og mun minna áhugasamur um sjónvarp, en með tilkomu nútímatækni er reyndar hægt að hlusta á útvarpsþætti hvenær sem er og það er nú gott. Þá á enginn að geta misst af einhverju útvarpsefni sem hann/hún hefði alveg verið að elska. Kæru lesendur, hjálpiði mér að auglýsa þáttinn sem best svo allir viti af öllum þessu leiðum sem eru til staðar, til að fylgjast með. Íslensk tónlist, ný og gömul, er ótrúlega spennandi og ég hef brennandi áhuga á henni, og sérstaklega þeirri sem heyrist kannski ekki út um allt. Var að fatta að það eru bara rúmir 5 mánuðir þar til Músiktilraunir hefjast aftur. Það eru semsagt rúmir 6 mánuðir síðan þær voru síðast. Svona mikinn áhuga hef ég á tónlist. Og svo er Airwaves eftir 2 vikur, sem er mjög gott. Ég vona að allir tónlistaráhugamenn reyni að stimpla þennan tíma, sunnudagar kl. 19.30, inn hjá sér, og ef það hentar ekki til útvarpshlustunar að gefa sér tíma síðar til að tékka á Langspili. Ég þakka lesturinn. Og P.S. það er frábær sýning sem tengist jaðar-útgáfu íslenskri í andyri Þjóðarbókhlöðunnar akkúrat núna. Mæli með.
sunnudagur, október 06, 2013
Langspil í kvöld og ljóð í strætó
Kæru félagar og áhugamenn um bloggmenningu! Ég er ekki nægjanlega dugleg að blogga, því fjárans facebookið hefur yfirhöndina. Það breytir því þó ekki að ef maður vill tjá sig um eitthvað er mesta pláss til þess hér. Twitter gefur manni 3 setningar, facebook hálfpartin krefst þess að það sé mynd eða vídeó eða linkur eða eitthvað skærlitað og "instant" sem fangar athyglina. Þeir sem enn geta lesið texta og haldið athyglinni lesa og skrifa blogg. Þessi færsla er þá fyrir þá. Að sjálfsögðu geta samt allir lesið og skrifað í dag, enn að minnsta kosti, en stundum finnst mér að fólk nenni því ekki og/eða gefi sér ekki tíma til þess. Ég er sjálf sek að því sama, þótt náttborðið mitt sé aldrei nakið, heldur hulið bókum. En allavega, í kvöld hefst Langspil, nýr þáttur sem ég stýri á Rás 2, og verður hann vikulega á sunnudagskvöldum klukkan ca. 19.30, eftir kvöldfréttir. Þar mun ég spila íslenska tónlist, nýja og gamla, og hlakka ég mikið til fyrsta þáttar í kvöld. Ég hef beðið með óþregju eftir að gera útvarpsþætti en það eru víst liðin 6 ár frá því ég gerði síðast þátt fyrir Rás 2. Síðan þá er búið að breyta öllu sem hægt er að breyta tæknilega, og ég er þessa dagana sveitt að læra á nýja tækni og nýjar græjur. Það er gaman, alveg ótrúlega gaman. Hér er heimasíða þáttarins:
http://www.ruv.is/langspil/hljomurinn-fundinn
Í öðrum fréttum. Það eru víst 2 ljóð eftir mig á ferðalagi í strætisvögnum Reykjavíkurborgar, og ómögulegt að halda utan um á hvaða ferðalagi þau eru. Það er lestrarhátið í borginni og liður í henni er Ljóð í leiðinni. Í öllum vögnum eru ljóð til að farþegum leiðist ekki og geti dundað sér við lestur. Það þarf semsagt ekki að gera annað en að taka strætó og þá er maður orðinn þátttakandi í ljóðahátíð. Hér er hægt að lesa heilmikið um lestrarhátíðina og Ljóð í leiðinni:
http://bokmenntaborgin.is/
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)