Leita í þessu bloggi

miðvikudagur, nóvember 12, 2008

David Bowie - Sound And Vision
Found at skreemr.com

Gott lag með David Bowie Bless.

sunnudagur, nóvember 09, 2008

Nýr linkur: http://this.is/Nei/
Athugið þetta daglega, þarna er eflaust lítil ritskoðun á því sem er í gangi í þjóðfélaginu. Velkomið í umræðuna, Nei!

föstudagur, nóvember 07, 2008

jæja, þá er komin helgi og ég reyni að gera tilraun til að hafa tíma til að athuga hvort ég geti ekki reynt að gera tilraun til að hafa tíma til að blogga. er það að takast? já auðvitað er það að takast, ég er að blogga er það ekki? ég vona það allavega annars veit ég ekkert hvað ég er að gera núna. kemst því miður ekki í mótmæli á morgun, er að spila á Eyrarbakka með þjóðfræðingnum Kristínu Einarsdóttur. ég verð í anda á mótmælum og vona að það verði troðið. já troðfullur austurvöllur af reiðu og öskrandi fólki sem heimtar að kosið verði upp á nýtt er of stór og áberandi til að fjölmiðrar geti gert lítið úr þessu og davíð oddson brosað og flissað. við verðum bara að láta í okkur heyra. ef það koma margir er líka svo gaman. þá kemst fólk kannski á bragðið og fer að heimta að mótmæla oftar í viku. hvernig væri að taka upp þann góða og gilda sið "mánudagsmótmæli" sem var við líði á alexanderplatz í berlín? hvern einasta mánudag kom fólk saman og mótmælti. það var alltaf eitthvað sem einhverjum mislíkaði. svo bara var hægt að skrá sig og sín mótmæli fram í tímann og svo var auglýst á netinu og manna á milli. prentaðir dreifimiðar og slíkt. alltaf troðið. ótrúlega skilvirkt kerfi. og ef maður segir ekki þegar manni mislíkar eitthvað þá sjá þeir sem eru að gera það enga ástæðu til að hætta. ég meina, ef mér finnst ótrúlega gaman að kitla þig, þá hætti ég ekkert fyrr en þú segir: ,,hættu ég vil ekki meir", og þá hætti ég náttúrulega undir eins. jafnvel þótt ég sjái að þú sér hlæjandi. en þú mótmæltir og ég hætti. svona á þetta að vera...er það ekki?

laugardagur, nóvember 01, 2008

muna að fara á http://www.kjosa.is og skrá sig. mikilvægt að sýna vilja sinn í verki. það gerist ekkert fyrr en við krefjumst þess.
Fokk ðe þjóðfélagsgagnrýni. Við vitum að þetta er allt á rangri leið nema skipt verði um stjórn.... Affsssakkiðð en ég nenni ekki að blogga pólitískt. Þetta er bara svo mikil heilbrigð skynsemi sem þarf að framkvæma að það er bara augljóst.

mánudagur, október 20, 2008

Jæja, afstæði hlutanna er gífurlegt. Maður er hættur að skilja upp né niður í neinu. Minnstu áhyggjurnar mínar eru allavega þær að ég hafi misst viku úr skólanum vegna þess að ég barðist við að halda heilsu á meðan ég söng 5 gigg á fjörum dögum. Airwaves-hátíðin var með allra skrýtnasta móti, en hún var einhvern vegin um allt annað en nokkru sinni fyrr. Hún var um að þrauka og halda áfram, þrátt fyrir þjóðfélagsaðstæður. Hún var um að vera með vinum sínum og hlæja saman, þrátt fyrir allt. Hún var um að reyna að gleyma sér, og fá smá umhugsunarfrest frá "hinum" heiminum, þ.e.a.s. hinum gráa raunverulega. Arthur Schopenhauer sagði að maður kæmist út úr gráa hversdeginum með því að hlýða á, eða leggja stund á tónlist eða aðrar listir, og það er akkúrat það sem þessi Airwaves-hátíð var um. Ég reyndi að sjá gigg hjá öllum sem mér þykir vænt um, þótt ég hafi náttúrulega ekki getað séð alla vini mína, sökum tímaskorts. En ég sá Bíbí í Singapore Sling, Sigrúnu og Magga Axels í Dýrðinni, Elizu með sólógigg, Bjössa og Sigga í The Pen, Elvar,Loft,Sigga og Stebba í Dys, hressuogskemmtilegu strákana í Sagtmóðigi, og marga fleirri. Náði reyndar ekki að sjá Curverinn í Ghostigital eða Guffann í For a Minor Reflection, en tíminn er alltaf takmarkaður. Ég er stolt af öllum þessum ótrúlega duglegu íslensku tónlistarmönnum sem hafa unnið kauplaust svo árum skiptir, bara af því bara. Þegar harðnar í ári er tónlist, tónleikahald og listin sjálf kannski enn mikilvægari sem tæki til að fá útrás, komast í burtu, gleyma sér. Ég veit ekkert hvernig þetta verður, en veit að þetta bara hlýtur að reddast. Einhvern veginn. Mér finnast kartöflur og súpukjöt gott á bragðið og það verður bara fínt að éta það og soðinn fisk sem maður kaupir niðr'á bryggju. Á hlý föt, á mann, á barn, á vini, er með þak yfir höfuðið, svo bara gerir maður sitt besta. Það er víst ekki hægt að gera meira en það.....

þriðjudagur, október 14, 2008


Hellvar playes tonight, 14.10, in Kaffi Hljómalind, Laugavegur. Gig starts 20.00
Hellvar playes tomorrow, 15.10, in Tunglið (The Moon),in Airwaves, gig starts 19.30
Hellvar playes thursday,16.10, in the Kimi Records Office, Smiðjustíg, gig starts 17.00
Heiða playes friday 17.10 in Rósenberg a troubadour-gig as part of Trúbatrix at 16.30
Dys (Elvar's punkband) playes saturday, 18.10, in Kaffi Hljómalind, gig starts 17.30
Show upp to all those gigs and you will get a secret award (very special!)
Komdu á alla þessa tónleika og þú færð leyni-verðlaun (mjög sérstök!)

mánudagur, október 06, 2008

Lag dagsins: Help með Bítlunum, dedicated to Ríkisstjórnin:

laugardagur, október 04, 2008

Erum á Snæfellsnesi í orkusöfnun. Komin með slatta, enda bæði búin að fara út í göngutúr klukkan 09.00 í morgun, og prufa ölkelduvatnssundlaugina á Lýsuhóli. Er búin að vera á leiðinni að prufa hana síðan sirka 1987. Varð bara alls ekki fyrir vonbrigðum. Það er reyndar aðeins minna gos í vatninu en ég hafði ímyndað mér, en samt bragðaðist vatnið eins og heitt sódavatn og maður fann smá svona kitl á húðinni. Synti helling og það var ævintýralega fallegt ofaní lauginni. Hefði viljað hafa þarna vatnsmyndavél, því ofaní voru grænir brúnir og svartir litir, og svo komu sólargeislarnir niður í vatn. Útkoman varð mjög draugalegt og gothic eitthvað. Verulega kúl lúkking. Taka upp myndband þarna ofaní, það er málið. Drífa sig í því áður enn allt er renóverað eins og virðist gerast nær alltaf þegar maður hefur fundið eitthvað svona gamalt og gott. Tók fullt af svarthvítum myndum á filmuvélina, svakalega spennandi að sjá hvernig þær koma út. Er að fara að elda, svo fæ ég mér eflaust ölsopa og áframhaldandi spjall við Kela og Elvar í kvöld. Við spjölluðum til 3 í nótt, um tónlist, sköpunargáfu, neista innaní fólki, vinnustofur versus hugmyndaflug og margt margt fleirra. Langaholt er æææææææðislegt gistiheimili, mæli með því fyrir alla. Reyndar ekki opið á veturna nema fyrir 10 manns í einu, en bara skella sér næsta sumar. Útlönd hvað? Snæfellsnes og jökull og ölkeldusund og afslöppun. Ég segi nú bara eins og Væla Veinólínó: Ha, Ha, ég hlæ!

miðvikudagur, október 01, 2008

sólin kostar ekkert. ekkert veður kostar enn neitt. njóta veðurs í öllu formi. það kostar ekkert að anda heldur...enn að minsta kosti. kostar ekkert að sofa. Mmmmm það er ókeypis lúxus að sofa soldið.........restin kostar.....nei ekkert að kyssast og elskast. ennþá hefur þeim ekki tekist að verðleggja og skattleggja þann munað!!!!!

þriðjudagur, september 30, 2008

Hætt að vera helgaráskrifandi að Mogganum, er að reyna að lækka tryggingargjöld, elvar er að fara að hitta einhverja hjá spara.is. langar að taka slátur, frysta svo í stóra frystihólfinu svo við eigum nóg að éta í vetur. næsta verslunarferð mun taka mið af skynsemi, þar sem ég kaupi mikið af því sem er á tilboði og geymist....mér líður eins og ég sé living on borrowed times svona eins og lennon sagði. Það er eitthvað svo hræðilega óljóst hvernig allt verður að maður er í alvöru farinn að hugsa um að hamstra og frysta og svo frv. verð að kaupa jarðarber svo ég geti sultað með rabbarbaranum sem mamma gaf mér og bíður klár. já, ég fer og endurvinn núna bara, og kaupi svo jarðarber, sykur og fleirra smálegt til búsins. hætta að kaupa sér gosdrykki eða nesti í nóatúni í hádeginu í skólanum. kaupa frekar slatta af alls kyns í bónus og taka með. svo er ókeypis að hjóla. ókeypis að lesa bækur (sem maður á) horfa á vídeó/dvd (sem maður á). Horfa svo á youtube til afþreygingar (netið ókeypis hér, eða inni í leigunni). Labba styttri vegalengdir, ekki freistast til að keyra...safnast þegar saman kemur. já, hvernig væri að afskrá kannski vespuna í vetur, til að spara..? Já, þetta eru allt góðir möguleikar. Svo er það vöruskiptadílar. Ég er góð söngkona (eða svona...heheh) Get sungið fyrir mat, sungið fyrir hitt og þetta...kannski ég ætti að bjóða bankastjóra Kaupthing að syngja fyrir hann og fá lægri vexti/og eða niðurfellingu verðtryggingar í staðinn???? Það væru bestu laun ever. Ég hef borgað af tveimur húsnæðistengdum lánum (íbúðarlánasjóð og einu 2 millj. í Sparísjóðnum) í rúm tvö ár, og heildarlánsupphæðir hafa hækkað um helling, mörg hundruð þúsund, þótt ég sé búin að borga niður mörg hundruð þúsund líka. Við verðum að kaupa kartöflur, hægt að matreiða þær á svo marga vegu....redda sér.

þriðjudagur, september 23, 2008

búin að kynnast því að stundum er bara það mikið að gera að alls kyns smáhlutir eins og blogg láta einfaldlega undan. Hráfæði er líka látið mæta afgangi, því það vinnst hvorki tími til að undirbúa eða tími til að fara í búð og kaupa það hráefni sem þarf. Á reyndar slatta í skúffunni minni og ætla að reyna að vera dugleg að vinna aðeins úr því um helgina næstu. Það verður óneitanlega minna að gera næstu helgi en þá síðustu, því þá var ég smá lasin, en fór samt í eitt ljósmyndaverkefni og á tvenna tónleika á laugardagskveld, og svo var sjö ára afmæli ólivers fagnað nær allan dag og framm á kvöld á sunnudag. vel gert. Djöfull var ég mygluð í allan gærdag. Nú er ég í 8.15 rútunni (sem kom um hálf-níu upp á völl) og verð því allt allt of sein í skólann minn í dag. En ég bara hreinlega missti af 6.55-rútunni. Það er bara voða erfitt að vakna klukkan 06.20 til að ná að gera allt og pissa og borða og allt áður en rútan fer. Hálf-7 dugar ekki, sannreyndi það í morgun. Blablabla. Lúxusvandamál, ætti að þakka fyrir að hafa aðgang að þessum fínu rútum alls ókeypis, og meira að segja með nettengingu. Er að hlusta Celestine, shitt hvað hún er vekjandi í morgunsárið. Módelteikning bíður mín, og listasaga eftir hádegi. sjámst.

laugardagur, september 13, 2008

var með ægilega góð plön um að gera helling, en svo er bara rigningarsuddi og ég ligg því í sófa og tölvast með engin plön. nema mig langar í sund og gufu. og melli og alexandra koma í kvöldmat klukkan sjö. semsagt: engin plön eins og ég sagði. vill einhver vera memm í kvöld?

þriðjudagur, september 09, 2008

Er að blogga í rútunni á leiðinni mieh. hahaaha. Sniiiiiiiiiiiiild!
Hér er þula fyrir ykkur:

rok og rigning út um glugga.
sá ég karl sem var að brugga.
hann var ljótur með rautt nef.
verr'en nefið sem ég hef.
vélin rymur, barnið gólar
í rútu eru vondir stólar.
keilir yggldi sig í framan,
hann og esja eru hætt saman.
læt nú loksins þulu lokið
velkomin í keflvískt rokið.

miðvikudagur, september 03, 2008