Leita í þessu bloggi
þriðjudagur, september 25, 2012
föstudagur, september 14, 2012
Hvað er að tarna?
Hvað er að tarna? Svör óskast í kommentakerfi. Annars er ég lifandi og sparkandi og að læra Hiragana á fullu. Gengur vel, og þá er bara strax byrjað á Katakana (eða byrjar í næstu viku). Ég ræð við'þetta en er bara á brúninni, þ.e.a.s. það mætti ekki vera meira vinnuálag í neinu til að ég snappaði og byrjaði að tala tungum sem ég hvorki kann né er að læra. Mig er búið að dreyma á japönsku og dreyma líka japönsk tákn, og svo vakna ég og þá er mig að dreyma að ég er að reyna að muna eitthvað hiragana-tákn. Semsagt heilabú mitt er gegnsósa af japönsku. Nú er ég á leið í 2. tímann í japönskum kvikmyndum og þá höldum við áfram að horfa á seven samurai eftir Kurosawa. Gott stöff og stendur fullkomlega uppi í hárinu á víkingamyndum íslendinga. Það mætti segja að Kurosawa sé Hrafn Gunnlaugsson Japana (eða kannski frekar öfugt...). Talandi um víkinga: Þegar ég var lítil þá man ég eftir því að hafa verið að pæla í setningunni "Nú er hún Snorrabúð stekkur". Er verið að segja að núna sé Snorrabúð orðin stekkur (hvað er stekkur?) eða vantar kommu í þessa setningu: Nú, er hún Snorrabúð stekkur,...Allar upplýsingar vel þegnar. Bæ!
sunnudagur, ágúst 26, 2012
Crazy
Ég hef nú skifað mína fyrstu veitingahúsagagnrýni og mína fyrstu kvikmyndagagnrýni. það var ekki svo mjög erfitt að dæma bíómynd, en kom á óvart hversu erfitt er að tjá sig um fjölbreytileika eldamennsku, fyrir utan það hvað það var erfitt að mæta svangur á veitingastað og þurfa að hafa pláss fyrir marga rétti, og skilja því eftir. Þetta hlýtur þó að lærast, og ég með minn litla maga þarf að hreinlega að narta bara í forrétti til að hafa pláss fyrir það sem á eftir kemur. Ég gæti ímyndað mér að það væri léttara að dæma vondan mat því þá er ekkert mál að skilja eftir, en að skilja eftir dýrindis kræsingar er kvöl og pína. Sú pína er þó skömminni skárri en magapínan sem fylgdi mér fram á næsta dag því ég gat ekkert skilið eftir á diskunum. Ég á enn eftir að dæma leiksýningu, myndlistarsýningu og bók, en geisladiska, plötur og tónleika hef ég oft dæmt áður. Það er gaman að vera að vinna í menningarblaði, þar sem efnið er menning líðandi stundar í víðustu merkingu þess orðs. Ég á þó mikið eftir til að ná að vera sátt og klára vel, en ég þarf að skila af mér "Miðborginni" á miðvikudag og fyrsta tölublað kemur út á föstudaginn 31.ágúst.
þriðjudagur, ágúst 21, 2012
Jæja nú er ég að taka 11 (ELLEFU!) virk efni sem eiga að hjálpa slíminu að fara og slá á bronkítis, asma og flensueinkenni. Ég keypti jurtablöndu í duftformi sem heitir Mímir, og í henni er: Sólhattur(Echinacea angustifolia), Engifer (Zingiber off.) Piparmynta (Mentha piperita), Cayenne pipar (Capsicum min.) Valhumall (Achillea millefolium) og Hvítlaukur (Allium sativum). Duft í heitt vatn, tastes like shit....
Svo keypti ég poka af jurtablöndunni Læðingur, og úr honum er gert seiði, 1 lítri fyrir hvern dag. Í Læðingi er: Hálsurt (Inula helenium), Lakkrísrót (Glycyrrhiza glab a -vantar einn staf þarna...?)Hvannarót (Angelica rad.) og Síberískt gingseng (Eleutherococcus senticosus). Gott tebragð með lakkrískeim.
Svo tek ég 15 dropa af oregano-olíu út í matskeið af ólífuolíu, mjaaaa, ekkert það vont, soldið skrýtið að gleypa olíu úr skeið. sleppur samt.
Þetta allt á ég að gera 3svar á dag, þar til ég lagast. Eins var mér ráðlagt að sleppa algerlega sykri og mjólkurvörum þar til þetta lagast. sykur, ekkert mál, er núþegar laus við það. mjólk, jógúrt, skyr, ekkert mál. smjör á brauð og ostar.............oooooooooooo, ég sem var að kaupa camenbert og fetaost....en ég get nú alveg borðað bara ost í dag, (klárað allt sem er til í ískápnum) og svo ekki söguna meir. jájá, mjólkurvörur veikja ónæmiskerfið og halda slíminu í líkamanum. staðreynd. sykur er bara vondur, punktur. hjálpar ekki til að vera að láta líkamann vinna á að brjóta hann niður og hreinsa út úr systeminu, þegar það er eitthvað annað sem ætti að vera að einbeita sér að. farin upp í sófa að lesa, og borða ost.
sunnudagur, ágúst 12, 2012
happy for my activity but unhappy for my lack of documentation
Dear diary!
I swear I am doing lots and lots of things. so many that I keep forgetting to write them down. I can be happy for my activity but unhappy for my lack of documentation thereof. So yesterday we went to Laugarvatn to go to the spa, and we used the natural sauna and jump into the lake Laugarvatn in between. Hot-cold-hot-cold-hot! And I liked it a lot. I could make that into a chorus in a song:
Hot-cold-hot-cold-hot
And I like it a lot!
Actually, it sounds like it could be a Rolling Stones-song.
Anyway, I went to sleep early, 11-ish, and woke up the first of everyone, 9-ish (yes, it is early for a sunday) and decided to go out for a walk. So I did, and walked through the small forest, and then I went to have lobby-coffee in Hotel Edda, and wrote for an hour or so. Came back and tasted some israeli-breakfast-eggs that our friend Carmith made for us. We hung out and then went swimming (more sauna). Drove to Selfoss and visited the cool café there, and drove to Reykjavik and bought pizza at Eldsmiðjan for dinner. I am busy doing nothing with the cat right now, thinking of retiring with a book and a jug of tea pretty soon. It is fun to be chillin' at home after a bit of a visit to the countryside. I was thinking of watching a movie, but now I only feel like reading. Books are the best.
Love, Heida
P.S. I have bronchitis again and I think there is some fungus in the house we live in...not great. Maybe we can move....we would like to live in 101 Reykjavík, though. Dear world and destiny, send us a cheap apartment near to here, sometime in the near future. When you have the time, no rush...
Heida again.
föstudagur, júlí 27, 2012
Hellvar "Nowhere" Video from wimvanhooste on Vimeo.
Nýtt myndband frá Wim Van Hooste við lagið Nowhere, með Hellvar, í akústískri útgáfu. Góða lund, góða lunda!laugardagur, júlí 07, 2012
mér er illt í maganum svo ég ákvað að fá mér fennel-te til að róa magann. svo lá ég í leti með tebollann á bumbunni að fá mér einn og einn sopa, búin að vera að dreypa á teinu í þónokkurn tíma, svo hitastigið var við kjöraðstæður, ekki of heitt og ekki of kalt. þá fékk ég hóstakast og sullaði úr magateinu yfir magann á mér. við það fór magaverkurinn. hef ég verið að misskilja teneyslu mína eitthvað í gegn um árin? er það útvortis???
föstudagur, júlí 06, 2012
Ég fór í alls kyns búðir í gær með Óliver. Við vorum að rápa um í miðbæjar-mallinu (kringlan), ef til vill örlítið lituð af bíómyndinni sem við horfðum á kvöldið áður (Mallrats). Við röltum um og hálfpartinn vonuðumst til að sjá parkour- og hjólabrettakrakka hoppandi upp um alla veggi, en í stað þess voru bara venjulegir Íslendingar á frum-, mið- og efsta stigi, small, medium og large. Við komum við í Hagkaupum og keyptum ofurplómur, eitt kíló, og rándýra ostaflís líka, og fórum í Tiger eftir uppþvottasvömpum. Keyptum pizzusneiðar í Sbarro sem samkvæmt þessari wiki-færslu opnaði sinn fyrsta verslunarmiðstöðvarveitingastað (langt orð)árið 1970, í Brooklyn. Þetta eru góðar og ódýrar pizzur, en Sbarro hafa víst verið í einhverjum fjárkröggum (sjá aftur Wiki-færsluna), svo ég mæli með því að allir fái sér mat þar, til að passa að þessi duglegu Ítalir sem komu til Ameríku 1956 haldist á réttu róli.
Í öðrum ókeypis auglýsingum á sætum stöðum í Reykjavík sem er gaman að fara og sjá, má benda á splunkunýja búð á Laugaveginum sem heitir Suomi PRKL og sérhæfir sig í finnskum vörum. Ég keypti bláberjasjampó og múmínálfatannkrem þar, en það var bara af því ég átti ekki mikinn pening til að eyða. Mig langar í svo margt og hér er hægt að sjá heimasíðuna þeirra: http://www.suomi.is/
Það er skýjað í Reykjavík í dag, en falleg flóra af litríku fólki sem mælir göturnar.
fimmtudagur, júlí 05, 2012
Fékk mér tvöfaldan soja-latté á Kaffifélaginu á skólavörðustíg í morgun, og ég held það hafi gefið mér aukakraft sem aldregi fyrr.Eins og heimasíðan þeirra segir er þetta "minnsti kaffibar á landinu og þótt víðar væri leitað" og það er svolítið gaman. Þú kemur, drekkur koffínið þitt (þú þarna skoffínið þitt!) og svo ferðu eitthvert annað. Í mínu tilviki á annað kaffihús sem er með tölvusamband, svo ég geti hangið á netinu og unnið. Eymundson, Skólavörðustíg er best í því tilviki því það eru stórir gluggar, hratt net, og alls kyns yndislegir drykkir (ég fékk mér íste, því ég var með nægt koffín í mér). Svo er mikið af börnum og útlendingum og engin tónlist. Kjöraðstæður til skrifta, semsagt. Mikið er Reykjavík falleg í dag, og ég er ekki með hita, held ég. Ef ég er með hita er hann lægri en undanfarna daga, og ég er líka byrjuð á sýklalyfjameðferð nr.2, eftir að uppgötvaðist að ég er með bronnkítis. Bronnkítis, bronnkotans, bronnfull!
þriðjudagur, júlí 03, 2012
gæludýramenn
kisinn minn liggur á sænginni minni og sleikir á sér feldinn. þar á undan var hann sofandi og eftir að hann er búinn að sleikja á sér feldinn leggur hann sig örugglega aftur. það er ótrúlega merkilegt að til séu dýr í heiminum hverra hlutverk er að vera sæt fyrir aðra dýrategund. Hvað ef við mannfólkið værum slík dýrategund fyrir einhver önnur dýr? Hugsanlega eitthvað dýr sem er klárara en maðurinn og líka aðeins stærra (til þess að þeim finnist við lítil og krúttuð). Svoleiðis dýr er ekki til á þeirri plánetu sem við þekkjum en auðvitað er það bara tímaspursmál þar til við fáum sannanir á lífi annarra tegunda á öðrum hnöttum. Það eru svo stjarnfræðilega litlar líkur á því að við séum einu lifandi verurnar í heiminum að það er eiginlega fáránlegt að við höfum ekki enn hitt aðrar. Mér finnst heimurinn eins og bíómyndirnar Men in Black lýsa honum, vera mjög sennilegur, og held að hann verði svoleiðis bráðum.
Ég væri alveg til í að vera gæludýr fyrir stærra dýr eins og kötturinn er gæludýr hjá manninum. Á meðan ég væri ekki í ánauð, og þyrfti bara að vera sæt og skemmtileg og krúttuð, þá væri ég til í það. Ef kettir virkilega vilja eitthvað þá fá þeir það. Eins og kötturinn okkar sem bara ásetti sér að vera úti í nótt, þrátt fyrir að vera frekar mikið inniköttur og líka hreint ágætlega við það. Hann er ekki hrifinn af öðrum köttum, frekar smeykur við þá, svo félagsskapur manna hentar honum því ágætlega. En seint í gærkvöld stökk hann út, um leið og hurð opnaðist, og hvarf. Köll á hann skömmu síðar báru engan árangur. Hann kom inn í morgunn og liggur nú og sefur, eftir að hafa sleikt allan feldinn sinn. Hann er rosalega mikið krútt.
mánudagur, júlí 02, 2012
kast hóstakastsins
kæra dagbók!
dagur 19 í hósta er runninn upp, þetta virðist ekki vera að enda. sumarið 2012 hefur svo sannarlega verið furðulegt. ég þarf samt eiginlega að fara af stað að búa til blað svo ég hósta þá bara í gegn um það. samt er ég furðu máttlaus eitthvað... Það fyrsta sem er á dagskrá þegar hóstaköstin yfirgefa mig eru hjólreiðar og að hlaupa. Ég stóð sjálfa mig að því að öfunda ókunnuga manneskju sem ég sá vera að hlaupa niðri í bæ, bara af því ég get það ekki þá er það spennandi. Samkvæmt þessum röksendum ætti ég líka að öfundast út í fugla, því hei, ekki get ég flogið...en ég get borðað orma og verið eins og þeir þannig. kasta ég nú hóstanum fyrir róða og fer út að hjóla. ég fæ þá bara hósta, svona fyrsta kastið...
miðvikudagur, júní 27, 2012
Ég sofnaði klukkan 01.00 í gær en vaknaði samt ekki fyrr en klukkan 14.00 eftir hádegi í dag!!! 13 tíma svefn er rosalega mikið, en kannski var ég bara svona búin á því. Í dag er 14 dagur í hóstaköstum og ég tók nokkur hressileg eftir að hafa legið út af svona lengi. Reyndar var eitt svo mikið að ég lá í keng á eldhúsgólfinu og út úr mér lak glært slím. Hringdi strax í Elvar sem sagði mér að hringja og fá símatíma hjá heimilislækni. Svoleiðis er uppbókað út vikuna en þau lofuðu mér að það myndi hringja í mig hjúkrunarfræðingur, sem auðvitað hringdi svo aldrei. Nú er klukkan 7 (19) þannig að á þeim 5 tímum sem ég hef verið vakandi er ég búin að: Fá mér morgunmat, lesa blað, svara tölvupósti, millifæra á Elvar svo hann geti náð í rafmagnsgítarinn minn úr viðgerð, skrifa upp viðtal og lagfæra, fá mér te og hnetur, spila tölvuleik, setja í þvottavél og þurrkara, borða pizzu sem Elvar eldaði, og nú er ég að fara að læra smá í þýsku í hálftíma eða svo (les Erläuterungen zu Hölderlins Dichtung með hjálp orðabókar) og byrja svo að horfa á Body Double sem er triller frá 1984. Svo kannski les ég smá og/eða horfi á aðra bíómynd. Í gær horfði ég á alla 10 seríu í Friends, en reyndar gerði ég auðvitað margt annað líka Meðfram þessu öllu saman hósta ég reglulega. Ég er hins vegar ekki að hjóla eða labba eða hlaupa úti, eða liggja í sólbaði, eða yfirhöfuð að njóta sumarsins, nema þá að njóta þess sem hægt er að gera inni. Ég væri vissulega ekki að læra þýsku eða japönsku eða að horfa á spennandi myndir undir venjulegum kringumstæðum. Skrýtið líf, verulega skrýtið.
mánudagur, júní 25, 2012
Tók aðeins til í útliti á þessu bloggi, mig var farið að langa í breytingu. Man hins vegar ekki lengur hvernig ég fékk þennan fjólubláa borða til að birtast efst, og ég væri gjarna til í að hafa hann rauðan eða svartan akkúrat núna. Það væri því vel þegið ef einhver áttar sig á því hvað þessi partur af leiátinu heitir, að koma leiðbeiningum um breytingar til skila hér í athugasemdum. Ég þarf að fara að blogga á hverjum degi aftur, það er svo miklu gáfulegra að segja eitthvað mis-gáfulegt hér en eitthvað mis-gáfulegt á facebook.
Nú er ég aftur á uppleið heilsufarslega séð, og ekki seinna vænna því það bíða margvísleg og fjölbreytt verkefni eftir mér. Ég ætla að skrifa svolítið, og æfa með Hellvar og æfa Bítlalög á gítarinn fyrir Bítlakoverbandið sem ég er í, og svo ætla ég að halda áfram að æfa mig í japönsku því ég ætla í japanskt mál og menningu í Háskóla Íslands í haust. Ég tek það fram að ég er algjör byrjandi í tungumálinu en hef einhvern veginn engar áhyggjur af öðru en þetta verði bæði gaman og ekkert svo erfitt. Ekki of erfitt, að minnsta kosti.
Ég er á degi tólf í veikindum og hósta, og þrái að komast í hjólaferð og í ræktina og í göngutúr og að sjá miðnætursól, en ég hef, að mig minnir aldrei orðið alvarlega veik á þessum tíma ársins áður. Sem betur fer styttist dagurinn alls ekki hratt þótt hann sé farinn að styttast og ég get huggað mig við að miðnætursólin er enn þarna. Hóstinn er það reyndar líka, svo nú er bara kapphlaup, hvort vinnur hóstinn eða miðnætursólin? Ég kem allavega örugglega heil í mark, hvenær sem það verður nú.
þriðjudagur, júní 05, 2012
Missti af gærdeginum út af pollen-ofnæmi. Eða réttara sagt, tók fyrri part dagsins með trompi og fór svo og krassaði heima. Við áttum ýmiss erindi út um allan bæ: Fara í LÍN, fara upp á Háskólatorg, koma við í æfingarhúsnæðinu, og því vorum við akandi. Já, afskaplega notarleg ökuferð í blíðunni með góða tónlist og rúðurnar skrúfaðar niður, þar til: BAMM. Ég finn bara hvernig birkipollen og/eða nýslegið gras ræðst á mig með andrúmsloftinu sem skall á andliti mínu. Ég var víst eitthvað að teygja hausinn út um hálfopinn gluggann, svo ég get kennt sjálfri mér um. Þarna fór að halla undan fæti og um klukkutíma síðar var ég orðin að slefandi hundi með blautt nef. Ég harkaði nú samt af mér og fór á kaffihús og svona, en kom við í Jurtaapóteki á leið heim og keypti 2 galdrajurtate, annað til innvortis og hitt til útvortis notkunar. Ég brugga seið úr Augnfró (Euphraisia officinalis) og skola augun upp úr því. Svo er hinn seiðurinn gerður úr Urtica dioica, eða Brenninetlu, og á honum er ég að dreypa. Nú eru allir gluggar lokaðir, og ég búin að vera að éta omega 3 fitusýrur og lauk og hvítlauk í öll mál. Það sagði internetið að minnsta kosti að myndi hjálpa. Mig langar út í "veðrið" en það er ekkert svo gott. Ef ég skelli mér í smá bæjarferð á eftir verð ég með blæju fyrir andlitinu.
sunnudagur, júní 03, 2012
Well, what do you know? A new blog-entry, and in English, for a reason I am unable to tell you... I woke up with English in my head, was speaking English to somebody in my dream. The dream was taking place in Selfoss where there was a conference in the hotel there, and I was taking part in it. All the "hnakki" (a hnakki is somebody with tribal-tattoos, sprey-tan, listening to euro-techno music, and liking muscles and cars) and the "skinka" (a female version of hnakki) were meeting in Hotel Selfoss, to talk about the newest developement in techno music, comparing protein-drinks, and attending lectures on the best tecnique to get an even spray-tan.
I have no idea why I was there, not being a skinka, but apparently when I woke up I was trying to get directions from someone in the lobby as to where I would find a pierchin-shop in Selfoss. I was getting pierched. Some dj-s were playing Icelandic pop music from the 80's and 90's in god awful techno-versions. I remember hearing "Vertu ekki að plata mig" and the famous unun-hit "Lög unga fólsins" in the most horrendous techno-versions. It was a strange dream.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
